Fréttasafn

Framkvæmdaleyfi vegna jarðstrengs í stað Selfosslínu 1

14 November, 2024

Samkvæmt 4. mgr. 14.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis vegna Selfosslínu 1:

Bæjarráð Árborgar samþykkti þann 11.7.2024 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna 66/132kV jarðstrengs í stað Selfosslínu 1, sem er 66kV loftlína austan Selfoss, vegna vegagerðar fyrir nýja Ölfusárbrú. 

Jarðstrengurinn í Selfosslínu 1 mun liggja til austurs, (sunnan Austurvegar) frá tengivirkinu á Selfossi og þvera Gaulverjabæjarveg sunnan hringtorgs og Suðurlandsveg og austan þess. Strengurinn er innan sveitarfélagamarka Flóahrepps frá hringtorginu. 

Leiðin liggur meðfram lóðarmörkum norðan Suðurlandsvegar og síðan samhliða nýja veginum að vestanverðu. Áður en komið er að Laugardælavegi er vegstæði nýja vegarins þverað við stofnlagnir hitaveitu, en er svo þveraður austan við þann stað þar sem hann fer í undirgöngum undir nýja veginn. 

Nýja veginum er svo fylgt að austanverðu um Moshólshaga að golfvellinum og mastri 114 í Selfosslínu 1. Sá hluti sem fellur innan Árborgar nær austur fyrir hringtorg austan Selfoss, en þar eru mörk milli Árborgar og Flóahrepps.

Framkvæmdin er ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu 21.5.2024. 

Nálgast má frekari upplýsingar á skipulagsgatt | mál 1354/2024

Ákvörðun stjórnvalds um samþykkt framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í Lögbirtingarblaði. Nánari upplýsingar má finna hér.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi

Arborg-Blatt-STORT-Texti-til-hlidar-2362pix_1677665101135

Skipulagsauglýsing 31. október 2024

4 November, 2024

Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að breytingu á aðalskipulagi Árborgar 2020-2036:

  1. Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 – Breytingar II. á ASK 2024 – 2404231

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti 21.8.2024 tillögu að breyttu Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, vegna breytinga á Selfossi og dreifbýli II. Tillagan var kynnt fyrir almenningi frá 17. júlí til 8. ágúst 2024.

Breytingin taka til eftirfarandi atriða:
1. Selfossflugvöllur. Vesturbraut flugvallarins er stytt, tekin er út sá hluti hennar sem er á landi í einkaeigu. Hindranaflötum er breytt til samræmis.
2. Opið svæðið OP1 er minnkað norðan Selfossflugvallar og verður aðeins á landi í eigu sveitarfélagsins.
3. Landbúnaðarsvæði L2 er stækkað yfir það svæði sem var opið svæði og flugvöllur.
4. Þéttbýlismörkum Selfoss er breytt og aðlöguð að breyttri afmörkun Selfossflugvallar og opins svæðis.
5. Kjallarar á Selfossi. Heimilt verður að vera með bílakjallara á Selfossi og gildir það líka um flóðasvæði, en kjallarar á slíkum svæðum skulu uppfylla tiltekin skilyrði.
6. Lóðin Austurvegur 20 verður öll miðsvæði. Í dag er um helmingur hennar samfélagsþjónusta. Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda skilmálar eldra aðalskipulags, með síðari breytingum. Gerð er breyting á greinargerð og uppdráttum: Gildandi og breyttur aðalskipulagsuppdráttur fyrir Selfoss, í mkv. 1:10.000. Ásamt breyttum uppdrætti fyrir dreifbýli í mkv. 1:50.000. Greinargerð með forsendum og umhverfismatsskýrslu.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is og á www.skipulagsgatt.is

Skipulagstillagan er í auglýsingu frá 31. október 2024, til og með 12. desember 2024. Þeir aðilar sem hafa athugasemdir eða ábendingar hafa frest til og með 12. desember 2024, til að skila inn til skipulagsfulltrúa (runarg@arborg.is), eða á www.skipulag@arborg.is.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið www.skipulag@arborg.is

Móskógar – Deiliskipulag

30 June, 2021

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 9. júní 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Móskóga, Sveitarfélaginu Árborg. Tillagan tekur til byggingar á tveimur lóðum, hvor um sig um 1 ha, sem skipt er úr jörðinni Móskógum. Heimilt verður að byggja íbúðarhús, bílskúr og skemmu á hvorri lóð.

Ofangreindar skipulagstillaga liggur frammmi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Deiliskipulagsbreytinin er auglýst með athugasemdafresti frá 30.06.2021 til og með 11.08.2021. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 11.08.2021.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Anton Kári Halldórsson | skipulagsfulltrúi Árborgar

Hello world!

10 May, 2016

Welcome to WordPress. This is your first post. Edit or delete it, then start writing!

VIðburðir