Aðalskipulag

Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem nær til alls lands innan hvers sveitarfélags. Í aðalskipulagi er sett fram stefna og ákvarðanir sveitarstjórnar um framtíðarnotkun lands, umhverfismál og fyrirkomulag byggðar, s.s. hvað varðar byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi. Þannig er stefnan sett fram í aðalskipulagi en útfærð nánar í deiliskipulagi fyrir einstök hverfi eða reiti.

Sveitarstjórn ber ábyrgð á gerð aðalskipulags sveitarfélagsins en skipulagsnefnd viðkomandi sveitarfélags hefur umsjón með gerð þess í umboði sveitarstjórnar.

Í ferlinu að gerð aðalskipulags er lýsing á fyrirhuguðu aðalskipulagi kynnt opinberlega og almenningi gefinn kostur á að koma ábendingum á framfæri. Samhliða er leitað umsagnar hjá Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum. Stefnumörkun sú sem sett er fram í aðalskipulagi skal miðast við að lágmarki 12 ár en í upphafi hvers kjörtímabils skal sveitarstjórn taka afstöðu til þess hvort endurskoða skuli gildandi aðalskipulag. Aðalskipulag tekur síðan gildi þegar það hefur verið samþykkt í sveitarstjórn og staðfest af Skipulagsstofnun.

Allt að helmingur kostnaðar við gerð aðalskipulags greiðist úr Skipulagssjóði en að öðru leyti ber viðkomandi sveitarfélag kostnað við gerð aðalskipulagsins.

Aðalskipulag Árborgar sveitarfélagsuppdráttur 2010 - 2030
Aðalskipulag Selfoss þéttbýlisuppdráttur 2010 - 2030
Aðalskipulag Stokkseyri þéttbýlisuppdráttur 2010 - 2030
Aðalskipulag Eyrarbakki þéttbýlisuppdráttur 2010 - 2030
Árborg aðalskipulag 2010 - 2030 greinagerð

Yfirlit yfir ferli aðalskipulags