Tilkynningarskyldar framkvæmdir
Tilkynningarskyldar framkvæmdir
Skv. byggingarreglugerð gr. 2.3.6 eru eftirtalin mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og -leyfi en tilkynningarskyldar.
Framkvæmdin skal vera í samræmi við deiliskipulag.
- a. Nýklæðning þegar byggðra mannvirkja.
- b. Tjaldhýsi sem nota skal í atvinnustarfsemi.
- c. Stöðuhýsi sem skulu standa lengur en 4 mánuði.
- d. Heitir og kaldir pottar eða laugar í görðum við íbúðarhús og frístundahús.
- e. Lítilsháttar breyting á burðarvirki sem nemur minna en 5% af hjúpfleti burðarhluta, þó aldrei meira
en 5 m². - f. Lítilsháttar breyting á brunahólfun sem nemur minna en 5% af hjúpfleti brunahólfandi hluta, þó
aldrei meira en 5 m². - g. Breytingar á lögnum.
- h. Rannsóknarmastur ætlað til mælinga, sett upp tímabundið og ekki lengur en til tveggja ára.
- i. Smádreifistöðvar fyrir raforkudreifingu, dæluhús hita-, vatns- og fráveitu og önnur lítil hús veitukerfa sem
eru að hámarki 15 m² og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs.
Tilkynnt er um framkvæmdir á Mín Árborg - Íbúagátt
Gjald vegna tilkynntra framkvæmda er skv. gjaldskrá skipulags- og byggingadeildar