Skipulagsmál

Aðal- og deiliskipulagsmál falla undir skipulagsnefnd Árborgar. Skipulagsfulltrúi starfar með skipulagsnefnd og hefur umsjón með skipulagsgerð ásamt eftirliti með að framkvæmdir séu í samræmi við skipulag og útgefin leyfi.

Ef óskað er eftir breytingu á aðal- eða deiliskipulagi eða samþykktar á nýju deiliskipulagi skal senda inn umsókn þess efnis til skipulagsnefndar með því að senda tölvupóst á netfangið skipulag@arborg.is.

Ráðlegt er að umsækjandi sæki um heimild til að hefja nýtt skipulagsferli áður en lagt er í hönnunarkostnað, slíkt getur umsækjandi gert með því að senda tölvupóst á netfangið skipulag@arborg.is

Skipulags- og byggingarnefnd fundar almennt tvisvar í mánuði á miðvikudögum.

Frestur til að skila inn gögnum fyrir fund er til kl. 13 á mánudegi í vikunni á undan fundardegi.

Leiðbeiningar varðandi gerð skipulags og málsmeðferð skipulagsmála má finna hér á síðunni og á kortasjá embættisins má finna flestar gildandi aðal- og deiliskipulagsáætlanir.

Skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Árborgar er Rúnar Guðmundsson og veitir hann ásamt riturum sínum nánari upplýsingar í tölvupósti, skipulag@arborg.is  eða í síma á símatíma milli kl. 9.00 og 12.00 alla virka daga – nema miðvikudaga.

HELSTU LÖG OG REGLUGERÐIR SEM VARÐA SKIPULAGSMÁL:

Skipulagslög nr. 123/2010
Skipulagsreglugerð nr. 90/2013
Lög um umhverfismat áætlana